Færsluflokkur: Evrópumál
22.3.2009 | 20:43
Vonlausu framboðin og borgarahreyfing sem fótum treður lýðræðið
Sigurjón M. Egilsson sagði í Sprengisandi á Bylgjunni að Borgarahreyfingin, L-Listinn og Frjálslyndi flokkurinn séu vonlaus framboð og spyr hversvegna þau hætti ekki þessu brölti.
Borgarahreyfingin hlýtur þó að toppa bröltið með sínu lýðskrumi. Þau segjast vilja þjóðina á þing, en vilja samt ekki vinna innan eigin hreyfingar með lýðræðislegum hætti.
Skemmst er að minnast þegar Borgarahreyfingin bar lýðræðið út á gaddinn þegar Ástþór Magnússon var í bókastaflegri merkingu borinn út af fundum þeirra í Borgatúni og leikhúsinu Iðnó. Meira að segja eftir að hann var "kosinn" inn aftur af fundinum í Iðnó stöðvaði hópur öryggisvarða "Opins borgarafundar" að hann fengi að mæla á fundinum.
Hvernig ætlar Borgarahreyfingin að hafa þetta á Alþingi næðu þau brautargengi? Bera út þingmenn sem eru þeim ekki þóknanlegir. Endurtaka leikinn úr Borgartúni og Iðnó og fjarlægja fólk sem einhverjum í þeirra röðum er í nöp við af áhorfendapöllum Alþingis? Bera út af þingpöllunum eins og gert er í einræðis- og kommúnistaríkjum Ástþór og aðra slíka áhugamenn um virkt lýðræði?
Í Silfri Egils kom fram að Borgarahreyfingin er nú að raða uppá framboðslista með sovésk vinnubrögð að leiðarljósi. Þráinn Bertelsson rithöfundur segir þau búin að lofa sér fyrsta sætinu í Reykjavík norður. Kjósendur fá ekkert að velja um þetta, kommisserarnir í Borgarahreyfingunni vita betur en lýðurinn og í bakherbergjum sínum hafa þau ákveðið að Þráinn sé maðurinn fyrir fólkið.
Birgitta Jónsdóttir einn frambjóðenda Borgarahreyfingarinnar segist ekki trúa á beint lýðræði og hún vilji alls ekki að þjóðin geti kosið um einstök mál. Bara stærri mál í þjóðaratkvæðagreiðslum. Hver á velja þau mál? Skáldið Birgitta og leikstjórinn Gunnar Sigurðsson?
Vonandi hefur þjóðin þá skynsemi að kjósa ekki yfir sig svona kommalýð sem hefur mánuðum saman siglt undir fölsku flaggi. Þannig hafa þau réttlætt ítrekaðar beinar útsendingar hjá RÚV, með því að tefla fram leiksýningum kallað "Opinn borgarafundur". Nú eftir marga klukkutíma af ókeypis sjónvarpsefni á kostnað þjóðarinnar tefla þau síðan fram sínu framboði sem auðvitað var alltaf á leynidagskránni hjá þeim.
Bjarni Harðar og L-listinn er litlu skárri en koma þó til dyranna eins og þeir eru klæddir. Þeir vilja ekki leyfa þjóðinna að kjósa um Evrópumálin. Fáranlegt að leyfa þjóðinna að velja um svona hluti segir gamla framsóknarbullan, við vitum betur en kjósendur. Er ekki komið nóg af svona framsóknarstefnu á Íslandi?
Synd með Frjálslynda flokkinn en auðvitað var hann dauðadæmur frá upphafi því þessi flokkur spratt uppúr ónægju stofnandans þegar honum var kastað á dyr í Landsbankanum fyrir spillingu. Auðvitað hafnar þjóðin flokki sem reis úr spillingarmýri.
Eina nýja framboðið sem sett er fram af heiðarleika og sem hægt er að treysta fyrir að koma hér á virku og alvöru lýðræði er Lýðræðishreyfingin. Skora á ykkur að kynna ykkur frábærar hugmyndir um rafrænt Alþingi, þátttöku almennings í umfjöllun og forgangsröðun mála og fleira á vefnum www.lydveldi.is. Þeir eru einnig komnir með útvarp í loftið Lýðvarpið á FM100.5 og vefinn frettavakt.is
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar